Ís-spari

Heil og sæl 

Margt hraunið hefur runnið síðan ég setti inn færslu. Datt niður á frábært nafn fyrir nýja fjallið eða fellið Ísspari, eða Icesave. Dagurinn sem við íslendingar gleymdum eymd og volæði var þegar byrjaði að gjósa.

Eitthvað nýtt fyrir okkur að hugsa um.  23988_380080435823_94957260823_4359524_4737988_n                       Mynd fengin að láni hjá Norðurflug

Íslendingar eru samt samir við sig, að þjóta austur á gallabuxum og strigaskóm já eða sumir ganga bara á sokkunum þar sem háhæluðu skórnir stungust of mikið í snjóinn, búin að sjá mynd af því, hahahh.

Vildi sjálf geta farið austur en er veik heima með í lungunum og ekki væri ábætandi að fá gufu eða reyk ofan í mig.

Hugsum okkur um, gerum allt sem við getum til að bæta hag þjóðar okkar. 

 

P.s Fólk vill réttlæti og útrásavíkingar munu ekki geta sér um frjálst höfuð strokið fyrr en........

kveðja og knús


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Mér finnst svolítið gott nafnið sem sveitarstjórinn í Vík stakk upp á.

Skjaldborg ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 28.3.2010 kl. 18:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband