Til hamingju, sjómenn nær og fjær.

Heil og sæl.

Til hamingju með daginn sjómenn og fjölskyldur.

Vaknaði kl. 10  nokkuð hress eftir dansiball og djam fram á nótt.....ekki prenthæft...Blush Fór í messu og skírn kl.11 .  Lítil vinkona mín heitir Gyða Rún.

 

Ég stóð mig ágætlega í samfélagsþjónustunni  í dag.  Bakaði köku fyrir kaffisölu Björgunarsveitarinnar  Berserkja í Stykkishólmi samt ekki sjómannskona enda hjálparsveitin fyrir fleiri en sjómenn og hvað gerir maður ekki ef maður er beðin fallega, ha.   Seldi merki dagsins við höfnina eftir hádegi.  Öll blöð seldust upp. Skemmtileg dagskrá.   9.bekkur Grunnskólans tók þátt í hjólböruhlaupi og reipitogi og ýmislegt annað til gamans gert. Virkilega skemmtilegt  þrátt fyrir norðan strekking.Wink

Seinni partinn fór ég í skírnarveislu  hjá Alla og Hildigunni.

Er orðin framlág og fer að stefna til kojs, zzzzzzzzzzzzSleeping

Góða nótt og guð geymi ykkur.

kv.Anna Sigga

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband