Guðrún Edda 16 ára í dag

Heil og sæl,

Í dag á Guðrún mín 16 ára afmæli. Vinkonur hennar sváfu hjá okkur í nótt og snemma í morgun kom Óli vinur hennar með nýbakaðar muffins.  Já krúttlegt það.  Allir drukku kalda mjólk og muffins í morgunmat.

Guðrún á Öskudaginn

IMG_0712

 

 

Núna er hún á Narfeyrarstofu með Guðrúnu Erlu, Sóley R, og Sóley að fá sér hamborgara, gos og snakk. Stuð hjá þeim.

Dagurinn var annars ágætur.  Fór á samkomu hjá Hvítasunnukirkjunni í Stykkishólmi.  Þar var heljarinnar stuð.

Klukkan 17:00 var ég kominn uppá hótel fyrir hönd leikfélagsins að hjálpa Eskimo og TrueNorth að finna leikara fyrir auglýsingu sem verður tekin á næstu dögum eða á nóttinni.  Um og yfir 100 manns mættu.

Jæja læt þetta nægja, ætla að gíra mig niður í hægagang,

 og hugsa um eitthvað fallegt t.d.  um dóttir mína.

 

kveðja, gangið sátt í háttinn,

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Til hamingju með stúlkuna

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 12.5.2008 kl. 22:15

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með fallega stelpu!

Hrönn Sigurðardóttir, 13.5.2008 kl. 12:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband