Hann hefði átt að vera með hybrid kerfi.

Heil og sæl.

Kannski er það lausnin á hraðaksti  háar sektir og svo að í staðin fyrir að hirða bílana af fólki hvort sem það eru ódýrir eða dýrir bílar að dæma fólk til að hafa HYBRID KERFI Í BÍLNUM SVO HANN KOMIST EKKI SVONA HRATT.......

Kveðja,


mbl.is Ökumaður yfirbugaður eftir hraðakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Hvert var málið ? 116 á veginum undir Hafnarfjalli ? Einhver af bestu beinu hættulausu köflunum á Íslandi sem er alveg hæfur í hraðakstur ! Það hlýtur að hafa mátt taka af honum mynd eða skrá númerið og senda honum góða sekt í pósti og dæla á hann punktum í ökuferilsskrá. Það er engin þörf á Serpicoaðferðum.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 7.7.2007 kl. 00:31

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Fyrirgefðu hvað hefði Serpico gert?

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.7.2007 kl. 00:37

3 Smámynd: Björn Jóhann Guðmundsson

Fyrirgefðu Anna mín en hybrid bílar fara því miður ekkert hægar en venjulegir. Þeir komast jafnvel bara hraðar

Björn Jóhann Guðmundsson, 7.7.2007 kl. 08:01

4 Smámynd: Jóhann

Nýji bíllinn forsetans er takmarkaður við 209 km/klst.

Jóhann, 7.7.2007 kl. 09:09

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

 Í fréttinni um forsetabíllinn er sagt að hann  fari á um 60-70 km hraða á rafkerfinu.  Hvað meinar þú um að hann sé stiltur á 209km.

kveðja

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.7.2007 kl. 10:55

6 Smámynd: Jóhann

Forsetabíllinn kemst upp á allt að 70 km/klst hraða á rafmótornum einum saman en hann er líka með 5 lítra V8 bensínvél og er því hámarkshraði bílsins takmarkaður við 209 km/klst.

Samsvarandi hámarkshraði á rafmótor á Prius er 45 km/klst.

Í þessum bílum er hnappur sem hægt er að ýta sem bannar bílnum að nota bensínvélina, oft kallaður bílastæðahússhnappurinn í Prius samhenginu, það nafn á kannski ekki alveg við á Lexusnum

Jóhann, 7.7.2007 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband