Danskir dagar og Danmerkurferð
3.9.2007 | 23:07
Heil og sæl,
Hvad siger du?
Já, mín er búin að vera annsi upptekin við eitt og annað.
Fyrst voru danskir dagar í Stykkishólmi. Mikil gleði og mikið grín. Fór á fína hjólinu mínu og seldi heitt súkkulaði og Lion bar súkkulaði fyrir Lionsklúbbinn Hörpu.Já rautt skal það vera á dönskum dögum.
Frábær helgi og fallegt veður.
Nú svo fór mín til Danmerkur með 10 bekk GSS Grunnskóla Stykkishólms til vinabæjar okkar Kolding. Skemmtilegir dagar, fórum í Legoland og Danfoss universe á Als eyju Frábært safn og vert að skoða.
Krakkarnir voru að vinna að verkefni um Danfoss hitastýri-tæki, þrýstijafnara og annað. Unnu síðan að gerð heimasíðu. Enduðum í Kaupmannahöfn í 2 daga, rok og rigning í Tívolíi en samt mjög skemmtilegt. Komum heil heim á laugardag, allir glaðir og kátir
eftir viku útiveru.
Jæja nú er tími til að blogga. Bóndinn farinn að Hólum í fiskeldis námið og kemur eftir viku. Heyrði í honum áðan og þetta leggst bara vel í hann.
Læt þetta duga, er enn í danska tímanum, verð að fara að sofa.
Góða nótt og sofið vært,,,,,,
Athugasemdir
Það hlaut að vera, skildi ekkert hvað hefði orðið um þig. kveðja í Hólminn.
Ásdís Sigurðardóttir, 3.9.2007 kl. 23:22
Takk,
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 3.9.2007 kl. 23:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.