Með skóflu og fötu út í skóg og vettlingar eru mælieining.

Heil og sæl,

Ég skellti mér til Svíþjóðar, Örebro og Stokkhólms með leikskólanum mínum, í svona námsferð.  Fullkomnir dagar.

Gaman að sjá eitthvað nýtt, það hreyfir við manni, fær mann til að hugsa hlutina upp á nýtt.

Skoðuðum leikskóla í Örebro með mismunandi áherslur,

Útileikskóli þar sem börnin eru mest allan daginn út í skógi,borða og gera þarfir sínar. Ef það er hægt að borða úti án þess að nota vettlinga er það gert.  Tónlistarleikskóli þar sem 80 % Grin barnana eru innflytjendur og samskipti erfið, Reggio leikskóla og foreldra-rekinn leikskóla, foreldrar eiga skólann og eru með stjórn og foreldrar þurfa að skila inn 35 tímum í vinnu á önn.

Skemmtileg og Svíar frábærir.  Númer 1,2 og 3 eru börnin.

IMG_0079Börnin á foreldra rekna leikskólanum teiknuðu mynd af íslenska fánanum með snjóboltum allt í kring og skrifuðu velkomin undir. fullkomið!

Jæja læt þetta duga í þessari færslu,

god natt,

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna

Sæl næstum því alnafna.   Þó það skjóti skökku við á þessum tímapunkti svona veðurfarslega séð þá segi ég samt sem áður gleðilegt sumar.  Gaman hjá ykkur að fara í svona námsferð og það út fyrir landssteinana

Anna, 10.5.2008 kl. 00:08

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sniðugar svona ferðir.

Eigðu góða helgi

Hrönn Sigurðardóttir, 10.5.2008 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband