Skrefamælir og kaloríu teljari

Heil og sæl.

Fór í góðan göngutúr í kvöld með Maríu vinkonu minni.  Við töluðum svo mikið að áður en við vissum af vorum við búnar með 5 kílómetra, veit það af því ég notaði göngumælir.  Já allir verða að eiga svoleiðis í kreppunni miklu.

 Verð að passa þófana, eftir að ég steig á nagla 1987 og 1968.  Núna eru taugaverkir að koma fram og herpingur.  Ekki gott.

Skildi vera hægt að sprauta botoxi í fæturnar eða setja silikonpúða.

Læt þetta duga að sinni,

Knús og kossa til ykkar sem eiga þá skilið.    










« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Zoéga Björnsson

Flott hjá þér :)

Björn Zoéga Björnsson, 20.10.2008 kl. 09:13

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þú getur fengið þér þykka, hlýja sokka! Eða innlegg til að varna því að fá verki í iljarnar.

Gangi þér vel áfram

Hrönn Sigurðardóttir, 20.10.2008 kl. 17:33

3 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Takk fyrir það, ég tek sko það til mín.  Sérstaklega knús og kossa. 

Þú ert nú alveg ótrúlega dugleg og viktunardagur á morgun!!!! 

Knús og kossar til þín, af því þú átt það skilið.      







Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 20.10.2008 kl. 17:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband