Oliver,Oliver Stykkishólmi 2 nóvember
16.10.2007 | 20:18
Heil og sæl.
Er veik heima eins og í vor en ekki eins slæmt tilfelli.
Nú um helgina síðustu voru fimir fingur sem smíðuð leikmyndir fyrir Oliver sem á að frumsýna þann 2 nóv samkvæmt plani.
Líkkistur, stigar, pallar og ýmisleg annað. Þakkir til Þorgríms, Svenna, Arnars, Daníels og Pálma. Einnig fær Skipavík þakkir fyrir að lána leikfélaginu aðstöðu. Formaðurinn tekur sig vígalega út vopnuð borvélum. ha ekki satt??
Þar sem Stykkishólmur á ekkert FÉLAGSHEIMILI eða LEIKHÚS kemur það niður á starfsemi leikfélagsins. Ræðum það síðar.... viðkvæmt mál
Nýr eigandi hefur keypt Hótel Stykkishólm og vonandi eigum við eftir að eiga gott samstarf um notkun á veislusalnum. ( áður Félagsheimilið )
Jæja bóndinn þarf að komast í tölvuna til að læra,
kveð að sinni,
Athugasemdir
Jæja loksins bloggfærsla ! Láttu þér batna stelpa :-) Fimir smiðir þarna fyrir vestan , sem er gott ;-) . Spurning um að renna vestur á frumsýningu ? kv stárasystiríborgóttans .
María Helga Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 08:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.