Plankastrekkjari til sölu, ónotaður
10.11.2008 | 22:35
Heil og sæl
Sá einn sveinka að þvælast, sá var vígalegur að sjá. Hann var að kaupa meiri pappír til að pakka inn gjöfum til þægra barna. Ég fæ víst engann nema ég bæti skapið.
Já það styttist í jólin og það þyrmir yfir mig hvernig fer þetta allt saman margir eru að missa vinnuna, reikningar hrannast upp.
Ég veit að jólin koma hvernig sem á stendur og jólin búa í hjartanu. það er það sem skiptir máli.
Nema hvað vigtunardagur á morgun tralatralalalalallknús
Athugasemdir
Jæja kæru vinir og þjáningar systkyni!
hér eru tölur úr Kópafirði
1. kg niður í viðbot!
Baráttukveðjur
jÓLI
ÓLI LiTLi (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 09:15
Hæ hér koma mínar tölur, er mjög sátt þessa vikuna fór niður um 1,3 kg.
Baráttukveðjur til þín/ykkar Þóra Gíslad.
Þóra Gísladóttir (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 13:44
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN. 12.11.2008.
Þóra Gísladóttir (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 14:04
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag.
Hún á afmæli hún Anna Sigga, hún á afmæli í dag.
Hún lengi lifi.
Til hamingju með daginn elskan mín.
Ég steig ekki á vigtina í dag, er enn þá 90 kg. Meira veit ég ekki. Kíki kannski á hana á morgun ef ég hef tíma og man eftir því.
Hér er allt vitlaust að gera í að klára verkefni fyrir 1.des og helst 2 verkefni. Er þó efins um að það seinna náist á þessum stutta tíma. Kemur í ljós.
En allavega til hamingju með daginn.
Kyssi, kyssi, kyssi, kyssi, knúsi.
Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 12.11.2008 kl. 14:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.