Fjöldi látinna..
7.7.2007 | 15:33
Heil og sæl.
Dag eftir dag eru fréttir með tölum um fallna og særða. Var að reyna að yfir-fara fréttirnar undanfarnar vikur en gafst upp við að telja. Þetta er hrikalegt.
Því getur fólk ekki búið í sátt og samlindi. Já, því er erfitt að svara.
Kveðja,
![]() |
Tala látinna í Írak hækkar enn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Veður-myndavélin í Stykkishólmi
7.7.2007 | 15:05
Heil og sæl.
http://www.stykk.is/webcam.html
Kúri hér heima og hef það notarlegt. Rigning úti og grasið grænkar með hverri mínútu og fj.. arfinn líka og peninga-tréð sem ég fann í Sorpu Já það er merkilegt hvað fólk er duglegt að henda...
Jæja sem sagt kúri hérna og hef það notarlegt. Ætla að sjóða fisk í kvöld, frábært.
Kíkið endilega á vefmyndavélina, verð niðri á höfn í kvöld og vinka.
Kveðja,
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Glæpsamlegt,
7.7.2007 | 11:25
Það er ekki spurning, auðvita þarf að breyta þessu. Hver verður með fulla ábyrgð ef eitthvað kemur fyrir.
Raflagnakerfið er öðruvísi og allir þessir straumbreytar sem þyrfti að nota, nei takk, bruna og slysagildra.
kveðja
![]() |
Spilað með öryggi 350 ungra fjölskyldna segir formaður Rafiðnarsambandsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ég elska harðfisk...frábært
7.7.2007 | 11:15
Harðfiskur hefur um aldir haldi okkur íslendingum hraustum. Heilsufæði.
Um daginn fór ég út í búð og vildi fá ferska ýsu. Nei ekkert til en full grind af harðfiski , nammm það varð kvöldmaturinn minn það kvöldið. Ekkert svo dýrari en hvað annað miðað við tímann sem það tekur að þurrka og vinna fiskinn. Lífrænt ræktað er líka dýrara.
kveðja,
![]() |
Harðfiskur er enn heilsusamlegri en talið var |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í tætarann með þetta....
6.7.2007 | 23:15
Heil og sæl,
Já er ekki komið nóg af þessari dr............
Kveðja
![]() |
Britney útilokar móður sína í erfðaskrá sinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Með lögum skal land byggja.....???
6.7.2007 | 23:11
Heil og sæl.
Mikið held ég að það þurfi að taka dómskerfið í gegn hjá okkur. Alls kyns brot teljast bara eðlileg og allt í lagi. Læknar þurfa líka að bera ábyrgð eins og aðrir. Já eða forstjórar stórfyrirtækja Ha, hvað með það?????
;Með lögum skal land byggja; er það útrunnið og merkingarlaust.'''?
Kveðja
![]() |
Björn Bjarnason: Taka þarf vinnureglur til endurskoðunar" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hann hefði átt að vera með hybrid kerfi.
6.7.2007 | 23:01
Heil og sæl.
Kannski er það lausnin á hraðaksti háar sektir og svo að í staðin fyrir að hirða bílana af fólki hvort sem það eru ódýrir eða dýrir bílar að dæma fólk til að hafa HYBRID KERFI Í BÍLNUM SVO HANN KOMIST EKKI SVONA HRATT.......
Kveðja,
![]() |
Ökumaður yfirbugaður eftir hraðakstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Virðulegur hybrid hraði.
6.7.2007 | 22:57
Heil og sæl.
Mikið held ég að það verði virðulegt að sjá Ólaf og frú aka um á 60 -70 km hybrid-hraða veifandi til almúgans.
Nú eða gefa allt í botna, stinga fjölmiðla af og skilja þá eftir í reykmekki.
Kveðja,
![]() |
Forsetaembættið fær umhverfisvænan bíl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fleiri en einn sem stíga fast á bensíngjöfina
6.7.2007 | 22:49
Heil og sæl,
Já mikið hóstakast er ekkert grín, eins gott að enginn varð fyrir bílnum nema veggurinn og húsið.
Lögreglan dugleg að stoppa aðila sem eru með fæturnar fastar á bensínpedalanum. Kannski er fólk í of stórum og þykkbotna skóm að þeir finni ekki fyrir pedulunum, ha eða .... eða hvað . það er ekkert sem skýrir svona aksturslag nema heimska.
Kveðja
![]() |
Ók á hús nágrannans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Til hvers að vökva gerfi-grasvöll?????
4.7.2007 | 23:33
Heil og sæl,
Ég er búin að umbreyta mér í moldvörpu og skríð út um allt bílaplanið og reyti arfa. Stæðið getur tekið 6 bíla, ég er að tala um arfa og aftur arfa.
Bóndinn heldur að ég hafi tapað geðinu en nei svona vinna bætir geðið svo um munar.
Hvað er betra en að sitja í svona 10 -12 stundir úti í góðu veðri og kraka með góðri klóru? Eintóm sumarblíð hérna fyrir vestan. Engin rigning, þannig að stæðið er þurrt og auðveldara að taka arfann. Þarf einnig að kantskera og er ég ekki búin ennþá. Þetta kemur.
Í kvöld fór ég í snyrtingu, lét plokka augabrúnir og lita augnhárin, algjört bjútí. Búin að fjarlægja óæskileg hár af fótleggjum og það eru bara 7 vinnudagar eftir í sumarfrí. Neglurnar eiga eftir að mani-kjúrast á franska vísu en það verður ekki gert fyrr en bílaplanið er klárt.
Í gær fékk dóttir mín einhvers konar hnetuofnæmis kast og endaði inni á spítala og fékk bót sinna meina. Mikið er maður varnarlaus þegar börnin manns eru annars vegar. Til að stytta henni stundir á spítalanum sagði ég henni gamlar sprelli sögur af mér á mínum yngri árum, hún skellihló og sagði, segðu mér meira,.. nei sumt er ekki hægt að segja....
Þegar ég var á leiðinni heim sá ég vatnsúðara buna á gerfigrasvellinum. Til hvers hugsaði ég. Kannski þarf að kæla kúlurnar svörtu í hitanum eða er allt að verða klikk*****
Jæja nú er dagur að kveldi komin og ég hygg á ferð inní draumaland.
Speki kvöldsins;
Halltu varlega á hamingjunni í hendi þér. Þú hefur hana aðeins að láni.
Kveðja,
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)