Ísland farsælda frón,
7.10.2008 | 19:46
Heil og sæl.
Nenni ekki að sökkva mér nákvæmlega í þessar hörmungar liðinna daga.
Er nógu þung fyrir. hahahah Nei halda skal áfram eins og ekkert hafi í skorist.
Á morgun er vigtunardagur og kominn skjálfti í órólegu deildina. Koma svo, senda inn tölur.
Ég er undir miklu álagi að finna húsnæði fyrir leikfélagið. Hótelið virðist hafa bókað allar helgar í nóvember þ.e. föstudag og laugardag fyrir jólahlaðborð. Skemman sem við höfðum augastað á fæst ekki.
Á ég kannski að athuga með kirkjuna, já spyrja safnaðarnefndina ?
Jesús Guð Dýrðlingur myndi sóma sér vel þar. Hátt til lofts og vítt til veggja. Já pæli í þessu.
Jæja er að fara upp á hótel á leikæfingu og skipulagsfund.
p.s. knús til allara sem ég þekki.
kveðja,
Athugasemdir
Hæ, jú tölur dagsins eru þær sömu og í síðustu viku. Hef ekkert lagt af núna í 2 vikur. Það þykir nú merkilegt á þessum bæ, miðað við hvað fór af á Reykjalundi. En að vera komin heim er ekkert sambærilegt, allt öðruvísi matur og ekki endilega eftir ströngustu stöðlum. Er farin að skrá grimmt í dagbókina mína, stigin sem ég læt ofan í mig á dag og vona að það hafi áhrif fyrir næstu vigtun.
Gangi þér vel með húsnæðismálin fyrir Jesús, hann hjálpar þér örugglega ef þú biður hann fallega.
Knús og kossar til þín og þeirra sem vilja þekkja mig.
Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 7.10.2008 kl. 21:14
Bíddu! Eru allir hér með sömu mynd?
Knús á þig kella mín
Hrönn Sigurðardóttir, 7.10.2008 kl. 22:10
...ég hélt þú værir kannski að tala við sjálfa þig.....
Hrönn Sigurðardóttir, 7.10.2008 kl. 22:12
Hæ Hrönn nei ég er ekki að tala við sjálfa mig , það er mismunandi litur á peysunum. Kristínar er dökkblá og við skutum báðar af boga á Reykjalundi. semsagt órólega gengið. knús til þín og þinna
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.10.2008 kl. 22:31
Gangi þér vel í viktun ,, áfram stelpa ;-) knúskveðjastórasystirireykjavíkinni
María Helga Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 01:03
Hæ, tölurnar mínar mættu vera betri, en ég bætti á mig 0,1 kg pufffff.
En það er bara svo að maður má ekki detta í gamla farið þá er þetta fljótt að koma aftur, ég fór í 2.afmælisboð í vikunni með þvílíkum sræsingum ummm og svo var matarboð og gleðskapur með rauðvíni og öllu tilheyrandi á laugardaginn frá kl 6 til 3 um nóttina bara frábært. Ég verð bara duglegri í þessari viku ekki spurning. Var að koma úr þreki og sundi og hitti Óla eldhressan í tækjasalnum.
Jæja heyrumst í næstu viku með betri tölur.
Gangi þér vel, Þóra Gíslad.
Þóra Gísladóttir (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 13:17
Sæl Þóra mín, voru þetta 100 grömm eða 1 kg upp???. Þetta er ekki svo slæmt, betra að þetta taki tíma svo að húðin jafni sig.Því eldri sem við erum því erfiðara er þetta. Já það er auðvelt að missa sig í mat. Já næsta vika verður skárri. Er búin að fara ðí tækjasalinn núna á 3ju viku og bætti einu kg á mig. svo þú ert ekki ein um þetta. baráttukveðjur knús og kveðjur
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 8.10.2008 kl. 15:14
Þið eruð báðar frábærar. Ég fór í gær í tækjasalinn sem er hér á Flúðum, svo núna er ég með hreyfingu á hverjum degi. Ég ákvað að slaufa svolítið göngutúrunum svo ég hefði líka tíma til að læra. Þarf að klára það líka. ÉG ER BYRJUÐ OG FINNS ÉG FRÁBÆR. Skráði mig á ordabok.is til að getað þýtt yfir á ísl. það sem ég er að lesa. Ég stend í stað eins og er og kannski fer þetta að lagast. En mér var sagt að þetta gerðist hratt fyrst og síðan kemur stopp og síðan fer þetta aftur af stað.
Knús og kossar, héðan af Flúðum og endilega kíkið líka á mitt blogg og setjið eitthvað inn í athugasemdir þar.
Kristín Magdalena Ágústsdóttir
varaformaður órólegurdeildarinnar.
Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 8.10.2008 kl. 15:58
Hæ skvís hver er formaður?
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 8.10.2008 kl. 18:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.